Leita í fréttum mbl.is
Embla

Mogginn endurreistur

Alla fimmtudaga fram ađ jólum verđur Morgunblađinu dreift frítt í heimahús á höfuđborgarsvćđinu.

Mér finnst ţađ vel til fundiđ hjá Moggafólki ađ minna á sig međ ţessum hćtti. Fjallađ er um rekstarvanda blađsins í fjölmiđlum um ţessar mundir en ţađ vćri mikill sjónarsviptir af Mogganum ef ekki tekst ađ koma rekstrinum á kjöl.

Manni verđur hugsađ til ýmsra annarra dagblađa frá uppeldisárunum sem eru horfin af vettvangi, s s Alţýđublađiđ, Tíminn, Ţjóđviljinn, Vísir og Dagblađiđ. Ţau fyrstnefndu voru flokksblöđ svokölluđ, ţau höfđu beina skírskotun til kjósenda ţeirra stjórnmálaflokka sem styrktu eđa stóđu ađ rekstri viđkomandi blađs. 

Ţeir sem báru út blöđ í hús ţekkja ţađ vel - ađ óhugsandi var ađ sá sem keypti áskrift ađ Tímanum myndi líka kaupa áskrift ađ Ţjóđviljanum o s frv. Fólk hélt sig viđ sína flokkslínu í ţessu og mörgu öđru. Menn keyptu sér jafnvel ekki bíl hjá hvađa bílaumbođi sem var ţó um ágćtisbíla vćri ađ rćđa, ef ekki voru "réttar" flokkspólitískar skođanir ţar viđ stjórn reksturins. 

Margt hefur breyst til hins betra ađ ţessu leyti í okkar samfélagi og viđ líklega orđin veraldarvanari sem samfélag, enda flestur sá rekstur sem byggđi á fáu öđru en flokkspólitískri tryggđ  - fyrir löngu kominn á hausinnCool 

Morgunblađiđ var á árum áđur flokksblađ Sjálfstćđismanna. Undanfarin ár hefur Mogginn horfiđ frá hinu flokkspólitíska harđlínu spori og höfđađ meira til hins almenna lesanda. Líklega er ţađ ástćđan fyrir ţví ađ blađiđ hefur lifađ af í samkeppninni a m k enn sem komiđ er. 


mbl.is Morgunblađiđ í aldreifingu fram ađ jólum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Asdis Sig

Mér finnst ađ fyrst ţeir eru ađ ţessu ţá eigi ţeir ađ gera ţađ á landsvísu, en kannski er hann vel keyptur úti á landi.

Asdis Sig, 6.12.2008 kl. 16:45

2 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Hvers eigum viđ ađ gjalda sem búum úti á landi.....ţađ er eins og mađur sé annars flokks landsmađur búandi ekki á höfuđborgarsvćđinu.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 6.12.2008 kl. 17:20

3 Smámynd: Kristján Sigurđur Kristjánsson

Til hvers ţarftu Moggan? Af hverju á ađ taka 4000 miljónir á versta tíma af almannafé til ađ henda í Árvakur? Hefur ţú efni á ţví? Vćri ţessum 4000 miljónum ekki betur komiđ í Geđdeild LSH međan eina tilvísun spítalans er sjálfsmorđ.

Kristján Sigurđur Kristjánsson, 6.12.2008 kl. 20:32

4 identicon

ţađ er ekki réttlćtanlegt ađ bjarga ţessu blađi, bara enganveginn. yrđi bara  hneyksli og látum ţađ ekki spyrjast um okkur, nóg er nú samt.

ađ byggja međ ţessum líka flottrćfilshćtti höll úti ţessum móa ţarna var afar heimskulegt -  sama hvađ hver segir - PUNKTUR !

ag (IP-tala skráđ) 6.12.2008 kl. 22:33

5 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Morgunblađiđ var á árum áđur flokksblađ Sjálfstćđismanna. Ertu nú svo viss um ađ ţessum tíma sé lokiđ?

Ingibjörg Hinriksdóttir, 6.12.2008 kl. 23:44

6 Smámynd: M

Fyrst ţeir eru ađ auglýsa ţetta á höfuđborgarsvćđinu, ţá vćri skemmtilegra ađ fá blađ í kassann   Fékk fyrsta daginn og svo ekki söguna meir.

M, 7.12.2008 kl. 00:57

7 identicon

Kristjánn Sigurđur Kristjánsson, ţú vilt ekki Moggann, en vilt ţú Fréttablađiđ og DV? Mér er spurn? Hver á stćstan hlutan í Mogganum?

Er ţađ ekki sá ađili sem á stćsta hluta í Mogganum sem hefur komiđ okkur á kaldan klakan í Íslensku efnahagslífi. Jón Ásgeir og "öll hans félög". Mér fanst ţú gleyma hinum blöđunum.

Guđrún Jónsdóttir.

Guđrún Jónsdóttir (IP-tala skráđ) 7.12.2008 kl. 02:01

8 Smámynd: Guđrún María Óskarsdóttir.

Sćl Marta.

Ég er alveg sammála ţér ađ Mogginn hefur sannarlega stađiđ sig sem ópólítiskur vettvangur alla jafna, eigi ţeir heiđur skiliđ sem ţar hafa stađiđ ađ málum.

kv.gmaria.

Guđrún María Óskarsdóttir., 7.12.2008 kl. 02:43

9 Smámynd: Sigfús Axfjörđ Sigfússon

Mogginn má fara, ţađ er kominn tími á breytingar á fjölmiđlamarkađi. Ég sá ekkert eftir hinum blöđnum og mun ekki sjá á eftir mogganum. Ég mundi vilja fá tvö til ţrjú lćsileg minni blöđ međ almenari skírskotun á ţjóđfélagsmyndina. Mogginn er ekki allra!

Sigfús Axfjörđ Sigfússon, 7.12.2008 kl. 03:31

10 Smámynd: Kristján Sigurđur Kristjánsson

Til Guđrúnar Jónsdóttur og annara:

Ég vil ekki ađ Mogganum verđi gefnar 4000 miljónir af ríkisfé. Fréttablađiđ og DV mega fara líka, ţađ er engin ţörf fyrir dagblöđ frekar en kallara.

ES: Fjárhagskreppan er ekki Jóni Ásgeir eđa "öllum hans félögum" ađ kenna, síđur en svo.

Kristján Sigurđur Kristjánsson, 7.12.2008 kl. 12:36

11 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Af öđrum blöđum ólöstuđum ţá ber Mogginn af ţeim fréttablöđum sem koma út ađ mínu mati. 

Sem betur fer náđi Fréttablađiđ og eigendum ţess ekki ađ knésetja Moggann eins og ţeir hafa eflaust vonast til, ţó um ójafnan leik ađ rćđa međ ţví ađ dćla blađinu ókeypis inn á öll heimili, hvort sem fólki líkađi ţađ eđur ei.  Ég vona ađ Mogginn lifi ţetta af ţó svo ađ ég lesi aldrei leiđarann.       

ps.   Skuldar ekki Jón Ásgeir og hans félög ţjóđinni upphćđ sem jafngildir átta Kárahnjúkavirkjunum međ öllum jarđgöngum? Ţađ er engin smá upphćđ!

Marinó Már Marinósson, 7.12.2008 kl. 14:49

12 Smámynd: Steingrímur Helgason

Marta B. Helgadóttir, veistu, ég sagđi upp áskrift minni ađ mogganum, ţegar mér var bođiđ upp á ađ borga mig frá auglýzingum fyrir mitt blogg á vef mbl.is fyrir einhvern súlupeníng á mánuđi.  Sem áskrifanda fannst mér alveg sanngjarnt ađ ţeir sem vćru slíkir, ţyrftu ekki ađ borga meira  fyrir ţá 'ţénuztu' en ţeir sem ađ vćru ţađ ekki.

Stjórnendum vefsins fannzt ekki sem svo, ţannig ađ mín trúa áskrifönd hvarf ţeim frá, ein lína á mín Vízakorti ţví líka ómerk & dauđ.  Breytir ekki ţví ađ Morgunblađiđ var ţegar ađ ţađ var, til forna sem flokkzmálgang Valhallar, bezta blađ landzinz, ţegar hún var & hét.

Núna trúir mađur ekki orđi frá neinum fréttamiđlum, ţetta er allt meira eđa minna ~baugađ~ eđa ~davíđađ~.

Mázke ćtti mađur ađ redda sér 'Playboy' ázkrift, dona fyrir greinarnar.

?

Steingrímur Helgason, 7.12.2008 kl. 23:05

13 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég hef lesiđ Moggann svo lengi sem ég man eftir mér og finnst hann ómissandi. Í dag legg ég á mig ađ fara hálftíma fyrr á fćtur til ađ eiga notalega stund međ Mogganum og góđum kaffibolla

Ţegar ég var barn og unglingur bárust bćđi Mogginn og Ţjóđviljinn inn á heimiliđ. Ţá var Mogginn auđvitađ miklu pólitískari en í dag ţannig ađ ţetta var mjög góđ blanda. Eftir á ađ hyggja held ég ađ ég hafi bara haft gott af ţessu. Ég er sem sagt alinn upp viđ ađ lesa bćđi Moggann og Ţjóđviljann, enda er ég pólitískt viđrini í dag  

Ágúst H Bjarnason, 8.12.2008 kl. 10:59

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Marta B Helgadóttir
Marta B Helgadóttir

Höfundur er bankamaður, bókaormur og listunnandi

martahelga@gmail.com

Til að skoða það efni sem viðkemur Leshringnum: skoðið færsluflokkinn "bækur" hér neðarlega vinstramegin á síðunni.

Ath.: Nafnlausir bloggarar eru ekki velkomnir á síðunni. Álit þeirra sem ekki tjá sig undir eigin nafni er ekki áhugavert. 

Bćkur

Lesefni í Leshringnum

  • Jón Kalmann Stefánsson: Harmur englanna
    Bókaspjall 28.mars
  • Paul Auster : Lokađ herbergi
    bókaspjall 21.febrúar
  • Anne B Radge : Berlínaraspirnar
    Spjalldagur 17.jan
  • Mark Haddon : Furđulegt Háttarlag hunds um nótt
    Bókaspjall 6.desember 2009
  • Sue Monk Kidd : Leyndardómur býflugnanna
    Bókaspjall 8.nóvember 2009
  • Ólafur Gunnarsson: Dimmar rósir
    bókaspjall 24.maí 2009
  • Einar Kárason: Ofsi
    bókaspjall 26.apríl 2009
  • Guđrún Eva Mínervudóttir : Skaparinn
    Bókaspjall 29.mars 2009
  • Auđur Jónsdóttir : Vetrarsól
    Spjalldagur 22.feb 2009
  • Oscar Wilde : Myndin af Dorian Gray
    Spjalldagur 18.janúar 2009
  • Liza Marklund: Lífstíđ
    Spjalldagur 14.desember 2008
  • Jeanette Walls : Glerkastalinn
    Spjalldagur 16.nóvember 2008
  • Kristín Marja Baldursdóttir : Óreiđa á striga
    spjalldagur 12.október 2008
  • Kristín Marja Baldursdóttir : Karítas án titils
    Spjalldagur 14.sept 2008
  • Yrsa Sigurđardóttir : Aska
    Spjalldagur 17.ágúst 2008
  • Jóhanna Kristjónsdóttir : Arabíukonur
    Spjalldagur 13.júlí 2008
  • Khaled Husseini: Ţúsund bjartar sólir
    Spjalldagur 15.júní 2008
  • Khaled Hosseini: Flugdrekahlauparinn
    spjalldagur 18.maí 2008
  • Hrafn Jökulsson : Ţar sem vegurinn endar
    spjalldagur 13.apríl 2008
  • Jón Kalman Stefánsson : Himnaríki og helvíti
    spjalldagur 9.mars 2008
  • Marina Lewycka: Stutt ágrip af sögu traktorsins á úkraínsku
    spjalldagur 10.febrúar 2008
  • Páll Rúnar Elísson og Bárđur Jónsson: Breiđavíkurdrengur
    spjalldagur 6.janúar 2008
  • Vikas Swarup: Viltu vinna milljarđ
    spjalldagur 25.nóvember 2007
  • Bragi Ólafsson: Sendiherrann
    spjalldagur 4.nóvember 2007
  • Ţorvaldur Ţorsteinsson : Viđ fótskör meistarans
    spjalldagur 30.september 2007
  • Milan Kundera: Lífiđ er annarsstađar
    spjalldagur 16.september 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband